Nei, dánaraðstoð er ekki lögleg á Íslandi. Samkvæmt 213. og 214. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er refsivert að svipta einstakling lífi, jafnvel þótt það sé gert að hans eigin ósk, eða að aðstoða hann við að binda enda á eigið líf.
Lög um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 heimila hins vegar einstaklingum að hafna læknismeðferð eða óska eftir að henni verði hætt, þar á meðal lífsviðhaldandi meðferð, jafnvel þótt sú ákvörðun geti leitt til andláts. Einnig er heimilt að veita líknarmeðferð til að draga úr þjáningum við lífslok. Slíkar ákvarðanir og meðferðir teljast ekki til dánaraðstoðar.
Á undanförnum árum hafa ítrekað verið lagðar fram þingsályktunartillögur um að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp til laga um dánaraðstoð. Dánaraðstoð hefur þó enn ekki verið lögleidd á Íslandi.
Í hollenskum lögum er ekki gerð krafa um að einstaklingar séu búsettir í Hollandi til að geta óskað eftir dánaraðstoð. Hins vegar er lögð rík áhersla á að traust meðferðarsamband hafi myndast milli læknis og sjúklings. Læknirinn þarf að þekkja sjúkrasögu og heilsufar sjúklingsins nægilega vel til að geta metið hvort öll skilyrði laganna séu uppfyllt. Í framkvæmd er því afar ólíklegt að einstaklingur sem ferðast til Hollands eingöngu í þeim tilgangi að fá dánaraðstoð finni lækni sem er tilbúinn að verða við þeirri beiðni.
Í Belgíu og Lúxemborg er heldur ekki gerð almenn krafa um ríkisborgararétt eða búsetu til að geta óskað eftir dánaraðstoð. Í báðum löndum þarf þó að fara fram ítarlegt læknisfræðilegt mat. Í Lúxemborg er jafnframt gerð krafa um að einstaklingur búsettur erlendis hafi verið í samfelldu meðferðarsambandi við lækni í landinu í nægilega langan tíma. Það er því fremur fátítt að einstaklingar ferðist til Benelúx-landanna eingöngu í þeim tilgangi að fá dánaraðstoð.
Öðru máli gegnir um Sviss, þar sem töluvert er um að einstaklingar frá öðrum löndum leiti eftir aðstoð við að deyja. Nokkur svissnesk samtök taka við umsóknum frá einstaklingum búsettum erlendis, meðal annars Dignitas, Pegasos, Athanasios og Phönix Care. Vitað er um að minnsta kosti einn Íslending sem hefur leitað til Dignitas í þeim tilgangi að fá dánaraðstoð.
Á Spáni geta erlendir ríkisborgarar, þar á meðal Íslendingar, einnig óskað eftir dánaraðstoð. Til þess þurfa þeir annaðhvort að vera með löglega búsetu á Spáni eða geta framvísað vottorði úr íbúaskrá sem staðfestir að þeir hafi dvalið í landinu í meira en 12 mánuði. Auk þess þurfa þeir að uppfylla önnur skilyrði spænskra laga um dánaraðstoð.
Í Hollandi er það skilyrði fyrir dánaraðstoð að læknir sé sannfærður um að ósk einstaklingsins sé sjálfviljug og vel ígrunduð og að hann hafi getu til að taka upplýsta ákvörðun. Einstaklingar með heilabilun geta því sjálfir óskað eftir dánaraðstoð á fyrri stigum sjúkdómsins, á meðan þeir hafa enn nægilega ákvörðunargetu.
Á síðari stigum heilabilunar getur vitræn geta einstaklings hins vegar verið orðin það skert að hann sé ekki lengur fær um að setja fram slíka beiðni. Hafi hann áður, á meðan hann hafði fulla ákvörðunargetu, útbúið skriflega lífsviljaskrá þar sem hann óskar eftir dánaraðstoð við tilteknar aðstæður, getur hún komið í stað munnlegrar beiðni.
Mikilvægt er að í lífsviljaskránni komi skýrt fram hvaða aðstæður einstaklingurinn telji fela í sér óbærilegar þjáningar. Ef sjúkdómnum vindur fram og einstaklingurinn getur ekki lengur sjálfur óskað eftir dánaraðstoð getur læknirinn stuðst við lífsviljaskrána við mat á því hvort veita megi slíka aðstoð. Lífsviljaskráin felur þó ekki í sér sjálfkrafa heimild til dánaraðstoðar, enda þarf læknirinn að ganga úr skugga um að öll lögbundin skilyrði séu uppfyllt.
Í löndum þar sem dánaraðstoð er heimil eru gerðar strangar kröfur til að tryggja að ákvörðun einstaklingsins sé sjálfviljug og vel ígrunduð, án þrýstings eða óeðlilegra áhrifa frá öðrum.
Í Hollandi verður beiðni um dánaraðstoð að koma frá einstaklingnum sjálfum. Læknir þarf að ganga úr skugga um að hann hafi nægilegan skilning á aðstæðum sínum, þekki þá meðferðarkosti sem standa til boða og geti tekið sjálfstæða ákvörðun. Læknir metur jafnframt hvort utanaðkomandi þrýstingur kunni að hafa áhrif á óskina. Ef grunur vaknar um slíkt getur verið nauðsynlegt að ræða við einstaklinginn einslega, án aðstandenda. Auk þess þarf óháður læknir að hitta einstaklinginn og leggja mat á hvort lagaleg skilyrði séu uppfyllt.
Í Belgíu eru gerðar sambærilegar kröfur. Þar þarf óskin að vera sjálfviljug, vel ígrunduð og ítrekuð. Engin utanaðkomandi áhrif eða þrýstingur mega liggja að baki henni. Einnig þarf að leita álits að minnsta kosti eins óháðs læknis.
Í báðum löndum er dánaraðstoð háð sérstöku eftirliti. Læknar þurfa að tilkynna framkvæmdina til viðeigandi yfirvalda og óháðar eftirlitsnefndir fara yfir hvort farið hafi verið að lögum og reglum.
Þessir varnaglar eru ætlaðir til að vernda einstaklinga gegn þrýstingi. Þótt aldrei sé hægt að útiloka slíka áhættu með fullri vissu er markmiðið að tryggja að dánaraðstoð sé aðeins veitt á grundvelli frjálsrar og upplýstrar ákvörðunar einstaklingsins.
Einstaklingur sem óskar eftir dánaraðstoð getur hvenær sem er skipt um skoðun og dregið beiðni sína til baka, án þess að þurfa að gefa upp ástæðu.
Í ferlinu er lögð rík áhersla á að óskin sé sjálfviljug, skýr og vel ígrunduð. Læknir ræðir hana ítarlega við einstaklinginn og gengur úr skugga um að hann sé staðfastur í ákvörðun sinni.
Dánaraðstoð er því ekki veitt á grundvelli skyndiákvörðunar. Ef einstaklingur skiptir um skoðun er hætt við framkvæmdina.
Samkvæmt lögum er samþykki aðstandenda ekki skilyrði fyrir dánaraðstoð, þótt æskilegt sé að sátt og skilningur ríki um ákvörðunina. Ef aðstandendur eru ósammála ósk einstaklingsins mun læknirinn ræða við þá, hlusta á sjónarmið þeirra og útskýra hvað felist í dánaraðstoð. Mikilvægt er að veita aðstandendum stuðning, hjálpa þeim að undirbúa sig undir missinn og auðvelda þeim að skilja og virða ákvörðun einstaklingsins.
Þótt ekki takist að ná sátt við aðstandendur getur læknirinn engu að síður orðið við beiðni einstaklingsins, að því tilskildu að öll lögbundin skilyrði séu uppfyllt. Ákvörðunin byggist enda á vilja og sjálfsákvörðunarrétti einstaklingsins, en ekki samþykki aðstandenda.
Já. Í löndum þar sem dánaraðstoð er heimil er læknum almennt ekki skylt að verða við beiðni sjúklings. Læknir getur neitað að veita dánaraðstoð af persónulegum, trúarlegum eða siðferðilegum ástæðum, á grundvelli svokallaðs samviskufrelsis. Læknir getur einnig hafnað beiðni af faglegum ástæðum, til dæmis ef hann telur að skilyrði laganna séu ekki uppfyllt.
Í Hollandi er læknum heimilt að hafna beiðni um dánaraðstoð, jafnvel þótt öll lagaleg skilyrði séu uppfyllt. Ef læknir er mótfallinn dánaraðstoð af persónulegum eða trúarlegum ástæðum ber honum að upplýsa sjúklinginn um afstöðu sína tímanlega svo hann geti leitað til annars læknis. Læknum er ekki skylt samkvæmt lögum að vísa sjúklingi áfram, en samkvæmt faglegum viðmiðum bera þeir siðferðilega og faglega ábyrgð á að aðstoða hann við að leita til annars læknis.
Í Belgíu hafa læknar sömuleiðis rétt til að neita að veita dánaraðstoð. Ef læknir hafnar beiðni á grundvelli samviskufrelsis ber honum að tilkynna sjúklingi það innan sjö daga og vísa honum til annars læknis sem sjúklingurinn velur.
Réttur einstaklings til að óska eftir dánaraðstoð felur því ekki í sér skyldu fyrir einstaka lækna til að veita hana.
Líknarmeðferð miðar að því að lina þjáningar og bæta lífsgæði einstaklinga með alvarlega sjúkdóma og fjölskyldna þeirra. Hún felur meðal annars í sér verkjastillingu, meðhöndlun annarra einkenna og sálrænan, félagslegan og andlegan stuðning. Líknarmeðferð getur hafist snemma í sjúkdómsferlinu og farið fram samhliða annarri læknismeðferð. Markmið hennar er hvorki að flýta fyrir andláti né að fresta því.
Dánaraðstoð felur hins vegar í sér að einstaklingur fær aðstoð við að binda enda á líf sitt, að eigin ósk og að uppfylltum lagalegum skilyrðum. Það getur annaðhvort verið með því að læknir gefur lyf sem valda andláti eða að einstaklingurinn tekur lyfin sjálfur með aðstoð læknis. Meginmunurinn felst því í tilganginum: Líknarmeðferð miðar að því að lina þjáningar án þess að markmiðið sé að valda andláti, en dánaraðstoð hefur það að markmiði að binda enda á líf einstaklingsins.
Í líknarmeðferð er stundum beitt svokallaðri líknandi slævingu þegar ekki hefur tekist að lina óbærileg einkenni með öðrum hætti. Þá er meðvitundarstig sjúklings lækkað með lyfjum til að draga úr þjáningum hans. Slævingin getur verið tímabundin eða samfelld fram að andláti. Þegar beitt er samfelldri djúpri slævingu er sjúklingnum haldið í meðvitundarleysi allt þar til hann deyr. Samkvæmt klínískum leiðbeiningum er tilgangur meðferðarinnar að lina þjáningar en ekki að valda dauða. Þó er ekki hægt að fullyrða afdráttarlaust að slævingin geti aldrei stytt líf. Fræðimenn hafa jafnframt deilt um hvort mörkin á milli þess að leyfa einstaklingi að deyja og þess að flýta fyrir andláti hans séu í öllum tilvikum jafn skýr og oft er haldið fram, sérstaklega þegar samfelldri djúpri slævingu er beitt án vökvagjafar.
Þótt líknarmeðferð og dánaraðstoð séu ólík úrræði útiloka þau ekki hvort annað.
Framkvæmd dánaraðstoðar er mismunandi eftir löndum og því hvort læknir gefur einstaklingnum lyfin eða einstaklingurinn tekur þau sjálfur.
Í Hollandi fer dánaraðstoð yfirleitt þannig fram að læknir gefur einstaklingnum fyrst lyf sem valda djúpu meðvitundarleysi. Þegar læknir hefur gengið úr skugga um að einstaklingurinn sé meðvitundarlaus eru gefin vöðvaslakandi lyf sem stöðva öndun og leiða til andláts. Mikilvægt er að tryggja djúpt meðvitundarleysi áður en síðari lyfin eru gefin svo einstaklingurinn verði ekki var við áhrif þeirra.
Í Sviss er framkvæmdin með öðrum hætti þar sem læknum er ekki heimilt að gefa lyfin. Einstaklingurinn verður því sjálfur að taka lyfin inn eða framkvæma þann verknað sem leiðir til andláts. Aðrir mega aðstoða við undirbúninginn en ekki framkvæma síðasta verknaðinn fyrir hann.
Dánaraðstoð getur farið fram á heimili einstaklingsins, á heilbrigðisstofnun eða á öðrum viðeigandi stað, eftir aðstæðum og reglum viðkomandi lands. Einstaklingurinn getur jafnframt óskað eftir því að fjölskylda eða aðrir nákomnir séu viðstaddir.
Í Hollandi ber læknum að tilkynna andlátið til viðeigandi yfirvalda að framkvæmd lokinni og gera ítarlega grein fyrir því hvernig staðið var að framkvæmdinni. Óháðar eftirlitsnefndir fara síðan yfir málið og meta hvort öllum lagalegum skilyrðum hafi verið fylgt.
Í Hollandi geta börn á aldrinum 12 til 15 ára óskað eftir dánaraðstoð, en til þess þarf samþykki foreldra eða forráðamanna. Ungmenni á aldrinum 16 og 17 ára þurfa hins vegar ekki samþykki foreldra, þótt skylt sé að hafa þá með í ákvörðunarferlinu. Í öllum tilvikum þarf að liggja fyrir að barnið hafi nægilegan þroska og skilning til að taka upplýsta ákvörðun og að öll önnur skilyrði laganna séu uppfyllt.
Þann 1. febrúar 2024 tók jafnframt gildi sérstök reglugerð í Hollandi um lífslok barna frá eins árs aldri og fram að 12 ára afmælisdegi. Reglugerðin tekur til mjög fárra barna sem eru dauðvona og þjást af ólæknandi sjúkdómum sem valda óbærilegum þjáningum sem ekki er hægt að lina með öðrum hætti, þar á meðal líknarmeðferð. Í þessum tilvikum er ekki um dánaraðstoð að beiðni barnsins að ræða, heldur getur læknir, í samráði við foreldra og eftir því sem unnt er barnið sjálft, tekið ákvörðun um að binda enda á líf þess. Slík tilvik sæta sérstöku eftirliti og eru metin af óháðri nefnd og ákæruvaldinu.
Í Belgíu var lögum um dánaraðstoð breytt árið 2014 þannig að ólögráða einstaklingar geta óskað eftir dánaraðstoð án tiltekins aldurslágmarks. Skilyrðin eru þó mjög ströng. Barnið þarf að hafa nægilegan þroska og dómgreind til að skilja ákvörðun sína og afleiðingar hennar. Það þarf jafnframt að þjást af alvarlegum og ólæknandi sjúkdómi sem veldur stöðugum, óbærilegum líkamlegum þjáningum sem ekki er hægt að lina. Andlegar þjáningar einar og sér nægja ekki til að uppfylla skilyrðin. Auk þess þarf að liggja fyrir að andlát sé yfirvofandi, samþykki foreldra eða forráðamanna þarf að liggja fyrir og barnageðlæknir eða sálfræðingur þarf að staðfesta ákvörðunargetu barnsins.
Í mörgum öðrum löndum þar sem dánaraðstoð er heimil, svo sem á Spáni, Nýja-Sjálandi og í Kanada, er hún hins vegar bundin við einstaklinga sem hafa náð 18 ára aldri.
