Mismunandi aðferðir dánaraðstoðar

Þjár meginaðferðir við dánaraðstoð

1. Læknir gefur einstaklingi lyf í æð.

Þessi aðferð er oft nefnd hollenska leiðin og er meðal annars notuð í Hollandi, Belgíu, Lúxemborg, Kanada, Kólumbíu og Nýja Sjálandi.

Við framkvæmdina gefur læknir einstaklingnum fyrst svæfingarlyf sem veldur djúpu meðvitundarleysi. Í kjölfarið er gefið vöðvaslakandi lyf sem stöðvar öndun og leiðir til þess að hjartað hættir að slá. Ferlið tekur yfirleitt aðeins nokkrar mínútur og einstaklingurinn er meðvitundarlaus þegar síðara lyfið er gefið.

Þessi aðferð nýtur mests stuðnings meðal þeirra þriggja leiða sem hér er lýst. Í könnun sem gerð var fyrir heilbrigðisráðherra vorið 2023 kom fram að 53,1% aðspurðra hugnaðist þessi aðferð best.

2. Einstaklingur tekur sjálfur inn lyf sem læknir hefur ávísað

Þessi aðferð er oft kennd við Sviss, þar sem samtök á borð við Dignitas og Pegasos aðstoða einstaklinga við að binda enda á líf sitt. Þjónustan stendur bæði íbúum Sviss og erlendum ríkisborgurum til boða, að uppfylltum tilteknum skilyrðum

Samkvæmt svissneskum hegningarlögum er heimilt að aðstoða annan einstakling við að binda enda á eigið líf, svo framarlega sem aðstoðin er ekki veitt af eigingjörnum hvötum, svo sem í fjárhagslegum ávinningi. Einstaklingurinn þarf sjálfur að framkvæma þá athöfn sem leiðir til dauða hans.

Í könnun heilbrigðisráðherra frá 2023 kom fram að 26,1% aðspurðra hugnaðist þessi aðferð best.

3.
Læknir ávísar lyfjum sem einstaklingurinn sækir í apótek og tekur sjálfur

Þessi aðferð er oft kennd við Oregon-fylki í Bandaríkjunum, þar sem dánaraðstoð varð heimil árið 1997. Hún er einnig notuð í öðrum ríkjum Bandaríkjanna þar sem slík aðstoð er lögleg.

Samkvæmt löggjöfinni í Oregon þarf einstaklingurinn meðal annars að vera með ólæknandi sjúkdóm sem búist er við að muni leiða hann til dauða innan sex mánaða. Að uppfylltum skilyrðum getur læknir ávísað lyfjum sem einstaklingurinn sækir í apótek og tekur sjálfur, á þeim tíma og stað sem hann kýs.

Sambærilega leið er einnig að finna í löggjöf Ástralíu, þó að útfærsla og skilyrði séu mismunandi eftir ríkjum.

Í könnun heilbrigðisráðherra frá 2023 kom fram að 9,1% aðspurðra hugnaðist þessi aðferð best.

Mikilvægur þáttur í umræðunni um dánaraðstoð á Íslandi er að skoða hvaða aðferð eða aðferðir gætu hentað best hér á landi og hvaða skilyrði ættu að gilda um framkvæmd þeirra.